Fara í meginmál

Eiginleikar

Allt sem reksturinn þarf á einum stað

Rekstrarkerfið leysir heimasíðu og hugbúnað af hólmi með einu kerfi. Kerfið getur einnig keyrt samhliða núverandi kerfum.

Vefur og efnisstjórnun

Heimasíðan þín með efnisstjórnun, íslensku og ensku, leitarvélabestun og bestun fyrir gervigreindarleit, allt innbyggt frá fyrsta degi.

Í dag: vefstofa í tímavinnu fyrir hverja breytingu. Með Rekstrarkerfinu: efninu er breytt beint á síðunni.

Verslun og pantanir

Vörulisti, karfa, greiðslur, pantanir, lager og strikamerki, allt í sama kerfi, engin aukakerfi.

Hugbúnaðurinn á ekki að vera fyrir. Hann á að breytast og aðlagast rekstrinum þínum til að flýta fyrir og lækka rekstrarkostnað.

Baunir á 11% og kvörn á 24% í sömu körfu. Greitt með korti, kvittunin gefin út og dagssalan uppfærð um leið.

Bókhald og reikningar

Reikningagerð með réttum VSK-þrepum, viðskiptamannabókhald og vörumóttaka, allt tengt beint við verslunina og lagerinn. Reikningar sem PDF, kortagreiðslur (Stripe) og sjálfvirkur tölvupóstur fylgja með, innbyggt.

Í dag: „Við sláum söluna inn í bókhaldið á kvöldin.“ Með Rekstrarkerfinu: salan er bókuð um leið og hún er slegin inn í kassann.

Reikningagerð & VSK

innbyggt · Reikningar með réttum VSK-þrepum, sendir beint úr kerfinu.

Viðskiptamannabókhald

innheimta & staða · Staða hvers viðskiptavinar og innheimtan á einum stað.

Vörumóttaka & birgðir

tengt versluninni · Móttaka uppfærir lager og kostnað sjálfkrafa.

Rekstrarkerfið getur verið bókhaldið þitt eða matað bókhaldskerfi endurskoðandans með færslunum. Þú velur hvort hentar.

Yfirlit, reikningar og hver skuldar hvað. Finndu kaffihúsið, opnaðu reikninginn með VSK-línunum og sjáðu kröfurnar eftir aldri.

Notendur, aðgangar og tungumál

Starfsfólk og viðskiptavinir fá hvert sinn aðgang með réttum heimildum, stjórnendur skrá sig inn með tveggja þátta auðkenningu og allt viðmótið er á íslensku og ensku.

Notendur

Aðgangsöryggi

Tungumál

Eitt kerfi fyrir alla en samt þitt.

Það sem er sérstakt við þinn rekstur er smíðað, aldrei sérútgáfa sem enginn þorir að uppfæra.

Öryggis- og viðhaldsuppfærslur koma sjálfkrafa inn án truflunar.

Beiðnir frá hnappnum „Óska eftir breytingu“ lenda hér, opnar og leystar, svo þú sérð alltaf hvað er í vinnslu og hvað er búið.

Um kerfið →

Sjá verðskrá